Úttekt um framkvæmdir við Fiskiðju langt á veg komin áður en ákvörðun um hana kemur til afgreiðslu bæjarstjórnar
Á fundi bæjarstjórnar í gærkvöldi átti sér stað sérstök atburðarás. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins voru tilbúnir með breytingatillögu vegna ákvörðunar bæjarráðs um úttekt vegna framkvæmda við Fiskiðjuna. Tillagan fólst í því að til að gæta meðalhófs og ábyrgrar meðhöndlunar opinberra fjármuna myndu starfsmenn Vestmannaeyjabæjar fara í ítarlega kostnaðargreiningu vegna framkvæmda og ef slík skoðun myndi leiða eitthvað óeðlilegt í ljós þá fyrst væri tilefni til nánari skoðunar. Hins vegar reyndist ógerlegt að leggja slíka tillögu fram þar sem það kom á daginn að umrædd úttekt verktaka sem lá til staðfestingar bæjarstjórnar var komin langt á veg án nokkurrar efnislegrar umfjöllunar né staðfestingar í bæjarstjórn líkt og lög kveða á um.
Sveitarstjórnarlög brotin
Bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjabæjar kveður á um stjórn og fundarsköp Vestmannaeyjabæjar og byggir á grunni íslensku sveitarstjórnarlaganna. Í 30. grein bæjarmálasamþykktar kemur fram: ,,Ef mál sem bæjarráð hefur heimild til að afgreiða eru samhljóða samþykkt í bæjarráði hefur bæjarstjóri heimild til að láta framkvæma þau. Ef mótatkvæði kemur fram í bæjarráði við afgreiðslu máls bíður frekari vinnsla þess afgreiðslu bæjarstjórnar.” Trausti Hjaltason bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði gegn málinu í bæjarráði og því var engin lagaleg heimild fyrir framkvæmd úttektarinnar sem er langt á veg komin. Þessir stjórnsýsluhættir brjóta ekki bara gegn 30. greininni heldur einnig 49. grein bæjarmálasamþykktar og 35. og 42. grein íslenskra sveitarstjórnarlaga. Sveitarstjórnarlög hafa verið brotin af hálfu meirihluta bæjarstjórnar, á því liggur enginn vafi.
Fallin eru fögur fyrirheit
Það duldist engum sem fylgdist með aðdraganda síðustu sveitarstjórnarkosninga að vönduð, bætt, gegnsæ stjórnsýsla og aukið lýðræði voru meðal helstu kosningaloforða stjórnmálaafla meirihlutans. Á þeim 8 mánuðum sem núverandi meirihluti hefur starfað hefur verið tekin einhliða ákvörðun um hluthafafund Herjólfs ohf., rekstrarfélags í eigu Vestmannaeyjabæjar án allrar opinberrar umræðu í bæjarráði eða bæjarstjórn, tekin fullkomin stefnubreyting um niðurfellingu fasteignaskatts á eldri borgara sem bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fengu að lesa um í fjölmiðlum aftur án allrar opinberrar umræðu og nú hafa bæjarfulltrúi Eyjalistans og bæjarfulltrúar stjórnmálaaflsins Fyrir Heimaey gerst sekir um brot á reglum bæjarmálasamþykktar og sveitarstjórnarlögum með upphlaupi vegna rangtúlkana sinna á framkvæmdakostnaði við eitt mest spennandi fasteigna- og atvinnuþróunarverkefni síðari ára.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði gegn málinu og lögðu fram bókun á fundi bæjarstjórnar þar sem þessir stjórnsýsluhættir eru harmaðir.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.