Jafnframt eru áhrif sveitarfélaga á forgangsröðun verkefna aukin. Framlög
ríkisins verða 30 milljónir króna árið 2007, 35 milljónir á næsta ári og 36
milljónir árið 2009 en sveitarfélögin leggja jafnframt fram fé til
sameiginlegra verkefna hvort heldur er með framlögum frá einkaaðilum eða með
eigin framlögum.
Gunnar �?orgeirsson formaður SASS undirritaði samninginn fyrir hönd
sveitarfélaganna en �?orgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, og
Árni M. Mathiessen, fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkisins.
Árið 2008 mun framlag sveitarfélaga nema 17,5% af heildarfjárhæð sem veitt
er til verkefnastyrkja og 25% árið 2009. Sérstakt 5 manna menningarráð var
skipað á fundi stjórnar Samtaka sveitarfélaga í dag og er formaður þess Jóna
S. Sigurbjartsdóttir, oddviti í Skaftárhreppi. Ráðið hefur meðal annars það
hlutverk að standa fyrir öflugu þróunarstarfi í menningarmálum, úthluta
fjármagni til menningarverkefna og verkefna á sviði menningartengdrar
ferðaþjónustu á Suðurlandi jafnframt því að annast framkvæmd samningsins.
Landfylling við Eiði: Samið við Þjótanda um fyrstu áfanga
Bilun í Herjólfi – sérfræðingur kallaður til frá Noregi
Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokknum
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum