Á þjóðhátíðinni var einn aðili kærður fyrir brot á vopnalögum en hann beindi leikfangabyssu að höfði lögreglumanns sem var staðsettur í lögreglubíl. Byssubófinn var handtekinn og hald lagt á leikfangabyssuna en lögregla lítur þetta mál alvarlegum augum, þar sem ekki er alltaf auðvelt að greina á milli leikfanga og alvöru skotvopna. Þá voru einnig gerðar upptækar peysur með lögreglustjörnunni áprentaða á bakið en einungis lögreglumenn mega bera stjörnuna. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglu sem má lesa hér að neðan.