Nú hefur Alþingi samþykkt fjárheimild til handa innanríkisráðherra og Vegagerðinni um að bjóða út smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju og gert er ráð fyrir því að ný ferja gæti komið til Eyja haustið 2018. Af því tilefni sendum við fyrirspurnir á þingmenn suðurkjördæmis um málið. Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi segist hafa verið þeirrar
skoðunar að mikilvægasta málið sé að tryggja áframhaldandi uppbyggingu Landeyjahafnar og ná sem bestum árangri með siglingar þangað. Án hafnarinnar og lagfæringum á henni verða litlar framfarir í siglingum í Landeyjahöfn og ný ferja muni aldrei geta lagfært þau mistök sem gerð voru við hönnun á Landeyjahöfn og fæst ekki leiðrétt. ,,Lagfæring á höfninni gerist ekki nema með rannsóknum en fjölmargir sjómenn og skipstjórar hafa bent á leiðir til að bæta höfnina en aldrei hefur verið hlustað á skoðanir þeirra, þó flest ef ekki allt sem þeir hafa bent á hafi gengið fram. Mín skoðun hefur verið sú að hlusta á þessa menn sem tala af reynslu og þekkingu og við á Alþingi sem tökum endanlega ákvörðun verðum að hlusta á þeirra rök. Fyrir þinginu liggja hinsvegar tillögur Vegagerðarinnar og Smíðanefndar Herjólfs og þeim hefur ekki þótt tillögur skipstjórnarmanna á Herjólfi, skipstjóra í Eyjum og á sanddælingarskipum Björgunar vera þess virði að hlusta á þær hvað þá að geta þeirra í gögnum sínum að neinu marki,�?? sagði Ásmundur.
En er ný ferja lausnin við samgönguvandamálum okkar Eyjamanna?
,,Við tryggjum öruggar samgöngur við Landeyjahöfn með lagfæringum á höfninni er stutta svarið. Engar óskir um fjárheimildir til að hefja rannsóknir á og við Landeyjahöfn liggja hins vegar fyrir og því ekki útlit fyrir að menn ætli að nota tímann þar til ný ferja kemur til að laga höfnina eins og allir tala um. �?g hef boðað breytingatillögu við Samgönguáætlun 2015 til 2018 þar sem gert er ráð fyrir 250 milljónum króna til rannsókna í þessu tilefni strax á næsta ári og vonandi næ ég tillögunni fram.�?? Hefur efasemdir Ásmundur segir að varðandi byggingu nýrrar ferju sé það ljóst að okkar góði Herjólfur sé orðinn 24 ára og ekki besta skipið til að sigla í vanskapaða Landeyjahöfn og því er löngu kominn tími til að byggja nýtt skip og nú sé það orðinn veruleikinn. ,,Vissulega vona ég að nýtt skip bæti samgöngur við Eyjar og fjölgi þeim dögum sem siglt verði til Landeyjahafnar. �?g hef hins vegar miklar efasemdir um þær væntingar og hef miklar áhyggjur af því að siglingar til �?orlákshafnar verði því miður mánuðum saman á hverju ári eftir að ný ferja verður tekin í notkun. Vonandi bætir fastur dælubúnaður í Landeyjahöfn við nýtingu hafnarinnar en engar rannsóknir hafa styrkt þá skoðun eða líkur. Mínar áhyggjur snúa því að þeim ótilgreinda tíma, 70 til 120dögum á ári sem enn þarf að sigla í �?orlákshöfn á ferju sem er sérstaklega hönnuð til siglinga í Landeyjahöfn og mun því verða óheppileg til þeirra siglinga með fáum kojum og ganghraða upp á
13,5 sjómlílur sem verður afturför á þeirri leið. �?ess vegna hefði þurft að laga höfnina og byggja skip sem hentar miðað við nýtingatíma í siglingum í Landeyjahöfn. �?að er því huggun harmi gegn að gamli Herjólfur verður þá áfram til þjónustu reiðubúinn og segir mér svo hugur um að flestir kjósi að sigla með honum þegar sigla þarf í �?orlákshöfn enda mun ný ferja ekki standast honum snúning í siglingum þangað svo ekki sé minnst á aðbúnaðinn og allar kojurnar.�??
Tökum áralagið í takt
Nú þegar ákvörðun liggur fyrir segir Ásmundur að hann og aðrir snúi sér á hina hliðina og voni það besta. �??�?g nenni ekki að taka fleiri snúninga í þessu ferjumáli, það er frá hjá mér með þessu svari. Við ættum að gera það öll. Hitt er að mikið verk er að koma höfninni í það lag sem við ætlumst til og ég trúi því að þar getum við öll lagst á sömu árina og tekið áralagið í takt. �?að er ekki eftir neinu að bíða að takast á við lagfæringar í og við Landeyjahöfn og krefja Vegagerðina nú þegar um áætlun til endurbóta á Landeyjahöfn og innsiglingunni í höfnina. Ef það verkefni bíður eftir nýrri ferju verður lengri tími til að væntingar Vestmannaeyinga rætist að fullu til bættra samgangna milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. �?að er því eitt verkefni eftir sem við öll vinnum að, betri höfn í Landeyjum.�?�