ÍBV náði í tvö stig í 13. umferð Olísdeildar karla í handknattleik í Garðabænum í dag með eins marks sigri á Stjörnunni 28:27. Theodór Sigurbjörnsson skoraði sigurmarkið þegar hálf mínúta var eftir.
Fannar Þór Friðgeirsson, leikmaður ÍBV sagði í samtali við mbl.is vera ánægður með uppskeru liðsins í desembermánuði. „Þetta var svakalega mikilvægur sigur og lokar góðum desembermánuði fyrir okkur. Eftir erfiða byrjun höfum við nú unnið fjóra leiki í röð. Erum um miðja deild en einnig í 8-liða úrslitum í bikarnum. Við getum því andað rólega og unnið vel í okkar málum í janúar,“ sagði Fannar. Hann er bjartsýnn á gott gengi ÍBV eftir hið langa frí sem nú tekur við í deildinni. „Ég er viss um að við eigum mest inni af öllum liðum í deildinni vegna þess að við byrjuðum mótið hræðilega. Þetta er allt að koma því við erum að vaxa sem lið. Ég hugsa að við hefðum klúðrað þessum leik ef hann hefði farið fram í september en okkur tókst að klára dæmið í dag. Það sýnir styrk hjá liðinu.“