Minna af makríl við Ísland í sumar

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson er nú á heimleið eftir að hafa lokið þátttöku í árlegum uppsjávarvistkerfisleiðangri í Norðurhöfum að sumarlagi (IESSNS, International Ecosystem Summer Survey in the Nordic Seas) sem hófst 1. júlí. Í leiðangri Árna kringum landið hafa verið teknar 65 togstöðvar og sigldar um 5400 sjómílur eða 10 þúsund km. Þá voru gerðar sjómælingar og teknir átuháfar á flestum togstöðvunum. Þetta kemur fram í frétt á vef Hafrannsóknarstofnunar.

Árni rannsakaði útbreiðslu og þéttleika makríls, síldar og kolmunna í íslenskri landhelgi fyrir norðan, norðaustan og sunna landið meðan að Færeyingar dekkuðu íslensku lögsöguna fyrir austan land og Grænlendingar fyrir vestan (eru ennþá við rannsóknir). Bráðabirgða niðurstöður sýna að magn makríls í íslenskri landhelgi er mun minna en verið hefur undanfarin ár. Eins mældist minna af kolmunna í ár samanborið við fyrri ár meðan að magn síldar er álíka og undanfarin ár. Í leiðangrinum voru einnig merkt alls 403 hrognkelsi.

Auk rannsókna á uppsjávarvistkerfinu var umfangsmikil sýnasöfnun úr miðsjávarlögum hafsins suður af Íslandi fyrir tvö alþjóðleg rannsóknaverkefni sem Hafrannsóknastofnun tekur þátt í, SUMMER (https://summerh2020.eu/) og MEESO (https://www.meeso.org/). Það eru bundnar vonir við það að þessi verkefni eigi eftir að skila nýrri og mikilsverðri þekkingu á miðsjávarlífríki Íslandsdjúps og Irminger hafs.

Veður voru óhagstæðari til rannsókna þetta sumarið en áður og höfðu ölduhæð og vindur þannig áhrif á rannsóknirnar í 10 af 28 dögum leiðangursins.

Gögn frá skipunum sex sem taka þátt í leiðangrinum verða tekin saman og greind upp úr miðjum ágúst og niðurstöður þeirrar vinnu síðan kynntar undir lok ágúst.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.