Minni loðnukvóti en vonir stóðu til
Hafrannsóknastofnun leggur til að upphafskvóti í loðnu fyrir veturinn verði 260 þúsund tonn. Nýafstaðnar mælingar Hafrannsóknastofnunar benda til þess að að hrygningarstofn loðnu verði um 660 þúsund tonn á hrygningartíma verði ekkert veitt. Samkvæmt aflareglu er gert ráð fyrir að skilja eftir 400 þúsund tonn til hrygningar en haustmælingar á loðnustofninum fór fram á rannsóknarskipinu Árna Friðrikssyni dagana 16. september til 10. október. Rannsóknasvæðið náði frá landgrunninum við austur Grænland í vestri og suður með landgrunnskantinum, auk þess til Grænlandssunds og Norðurmiða, allt austur að Sléttu, eins og segir á vef Hafrannsóknastofnunar.
Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að samkvæmt spálíkani stofnunarinnar gáfu mælingar á ungloðnu í fyrrahaust væntingar um að upphafskvóti á loðnu í vetur yrði 450 þúsund tonn. Spálíkanið er hins vegar ekki viðurkennt af Alþjóðahafrannsóknastofnuninni. �??�?ví var upphafsaflamark vertíðarinnar 50% af spáðu aflamarki eða 225 þúsund tonn. Niðurstaðan er eins og áður sagði 260 þúsund tonn, 190 þúsund tonnum minna en vonir stóðu til, en 35 þúsund tonnum meira en var í upphafsaflamarki,�?? segir í Morgunblaðinu.

Nýjustu fréttir

Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi
Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?
Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.