Misheppnað innbrot á Lundann

Mis­heppnað inn­brot átti sér stað í Vest­manna­eyj­um aðfaranótt laug­ar­dags þegar óprútt­inn aðili braust inn á skemmti­staðinn Lund­ann og reyndi meðal ann­ars að opna spila­kassa en mistókst.

Maður­inn komst í fyrstu inn um opn­an­legt fag á bak­hlið húss­ins og tók stefn­una á 2. hæð skemmti­staðar­ins þar sem spila­kass­ar eru staðsett­ir. Hann reyndi að opna spila­kass­ana en hafði ekki ár­ang­ur sem erfiði.

Næst fór hann út af skemmti­staðnum og reyndi að kom­ast inn á fram­hlið og jarðhæð með því að brjóta glugga. Það mistókst einnig því hann komst ekki inn um glugg­ann og lét sig á end­an­um hverfa.

Engu var því stolið og ein­ung­is um skemmd­ar­verk að ræða.

„Eft­ir­lits­mynda­vél­ar eru inni á skemmti­staðnum sjálf­um og þar sést inn­brotsaðil­inn á þeim en hann er með hulið and­lit og óþekkj­an­leg­ur. Það er verið að rann­saka málið og kanna alla mögu­leika,“ seg­ir vakt­stjóri lög­regl­unn­ar í Vest­manna­eyj­um í sam­tali við mbl.is.

Nýjustu fréttir

Dramatískur sigur ÍBV á Haukum
Stórsigur ÍBV á Akureyri
Lengjubikarinn hófst í dag hjá ÍBV
Bongóblíða í Eyjum
Siglt á flóði til Landeyjahafnar
Hildur Sólveig sjúkraþjálfari: ,,Best að taka eitt skref í einu”
Svona hefð og svona stund styrkir samfélagið
Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.