Mögulegt að færa miðann á Þjóðhátíð 2021

Nú er orðið aðgengilegt að taka afstöðu til miðakaupa inn á „Mitt svæði“ á Dalurinn.is. Þetta kemur fram í tilkynningu sem ÍBV sendi frá sér í morgun. Undir þinni pöntun er hnappur „Taka afstöðu til miðakaupa“ sem þú smellir á og velur einn af þremur möguleikum. Valmöguleikarnir eru að flytja miðann þinn yfir á Þjóðhátíð 2021, styrkja ÍBV um miðakaupin eða fá endurgreiðslu að fullu eða að hluta.

Hörður Orri Grettisson framkvæmdastjóri ÍBV sagði að ferlið væri auðvelt og á ekki vona á því að mikil vandræði komi upp. Hann sagði að lítil reynsla væri komin á kerfið en allt hafi gengið vel hingað til.

Styrkja ÍBV
Áfram er hægt að kaupa miða á Þjóðhátíð inn á Dalurinn.is til að styrkja barna og unglingastarf félagsins. Einnig er hægt að leggja inn á reikning 0582-04-250491. Kennitala: 680197-2029.

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.