Hjónin Magnús Bragason og Adda Jóhanna Sigurðardóttir hafa keypt Hótel Þórshamar af hjónunum Gísla Val Einarssyni og Björgu Guðjónsdóttur, sem hefur rekið hótelið í um áratug. Þau Magnús og Adda taka við rekstri hótelsins eftir áramót en auk aðalbyggingarinnar, kaupa þau einnig tvö önnur hús í næsta nágrenni sem hafa verið notuð sem gistiheimili með rekstri hótelsins, Hótel Mamma og Sunnuhóll.