Í maí eru tíu ár liðin frá því að Húsasmiðjan keypti Húsey og hóf rekstur í Vestmannaeyjum. Það er því vel við hæfi á þeim tímamótum að Húsasmiðjan flytji sig um set og fari í nýtt og glæsilegt verslunarrými við Græðisbraut 1. Þar rís nú 1100 fermetra verslunarhús, sem er tvöfalt stærra en núverandi verslunarrými. Við flutningana bætist við verslunin Blómaval, sem hefur ekki verið með verslun áður í Eyjum. Áætlað er að nýja verslunin verði opnuð í lok sumars.