Karlalið ÍBV í knattspyrnu kom saman til æfinga í Eyjum um helgina. Leikmannahópurinn er, eins og undanfarin ár, tvískiptur þar sem einn hluti hópsins er í Eyjum en hinn á höfuðborgarsvæðinu. Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV stjórnar æfingu í borginni en aðstoðarmaður hans Dragan Kazic stjórnar æfingum í Eyjum. Nokkrir gamlir leikmenn eru byrjaðir á ný að æfa með ÍBV.