Nýr Eyjaslagari frá Hr. Eydís og Ernu Hrönn

Hljómsveitin Hr. Eydís og söngkonan Erna Hrönn hafa sent frá sér nýtt lag, ,,Heima Heimaey”, sem komið er út á Spotify og öllum helstu streymisveitum. Hljómsveitin tók gamla partýslagarann ,,Heya Heya” með The Blaze frá 1982 og færði hann yfir í íslenskt partýform, í senn óður til Vestmannaeyja og gleðinnar á Þjóðhátíð.

Örlygur Smári einn meðlima Hr. Eydís hafði þetta að segja um lagið: „Mig hefur í nokkurn tíma langað að gera þessa útgáfu, en hugmyndinni laust niður í hausinn á mér þegar ég lá í heitum potti í sumarbústað og heyrði Heya Heya með The Blaze spilað í Hamingjustund þjóðarinnar á Bylgjunni. Það var eiginlega ómögulegt að sleppa þessu, svissa bara Heya Heya Hey yfir í Heima Heimaey og málið dautt! …þó við verðum ekki á Þjóðhátíð í sumar létum við það ekki stoppa okkur en við ætlum að trylla Hjarta Hafnarfjarðar og Akureyri um versló.“

Hér má finna link af nýja laginu þeirra á Spotify: https://open.spotify.com/track/12iA9ZaC11bopVkAuBiqkW?si=f2dd26a3ee56422d

 

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.