Að undanförnu hefur verið unnið að endurbótum á Básaskersbryggju. Í fyrra voru rekin niður stálþil, en á þessu ári hefur verið unnið við sjálft bryggjugólfið, lagnir og yfirborð, sem verður úr steinsteypu. Verktaki að síðari verkhlutanum var fyrirtækið 2Þ.