Doktor í líffræði telur að undanfarna áratugi hafi lundaveiði í Vestmannaeyjum verið að jafnaði helmingi meiri en sjálfbær viðmið segja til um. Þetta kemur fram í niðurstöðum í rannsókn Dr. Erps Snæs Hansens, líffræðings hjá Náttúrustofu Suðurlands, á lundastofninum í Vestmannaeyjum. „Veiðar hafa verið of miklar síðustu hálfa öld,“ segir Erpur.