Ófært til lands - uppfært
Herjólfur siglir ekki meira í dag. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Tekin hefur verið ákvörðun um að fella niður seinni ferðir Herjólfs vegna veðurs og sjólags. Ferðirnar voru áætlaðar kl. 16:00 frá Vestmannaeyjum og kl. 19:45 frá Þorlákshöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipafélaginu.

Farþegar sem áttu bókað eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína. Ákvörðun sem þessi er alltaf tekin með hagsmuni farþegar og áhafnar í huga, vonum við að því sé sýndur skilningur.  Útlit með siglingar fyrri part laugardags lítur ekki vel út eins og staðan er núna, ef gera þarf breytingar á áætlun verður það gefið út í síðasta lagi kl. 06:00 í fyrramálið.

Uppfært kl. 21.40

Ákvörðun hefur verið tekin að fella niður fyrri ferð morgundagsins sem áætluð var til/frá Þorlákshöfn kl. 07:00 og 10:45 vegna veðurs og sjólags. Farþegar sem eiga bókað eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína. Ákvörðun sem þessi er alltaf tekin með hagsmuni bæði farþega og áhafnar í huga, vonum við að því sé sýndur skilningur .Hvað varðar siglingar fyrir seinnipart laugardags verður gefin út tilkynning fyrir kl. 15:00, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Nýjustu fréttir

Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin
Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.