�?ll á sama bátnum - Sáttur við nýja samninga
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar
�?eir kjara­samn­ing­ar sem voru und­ir­ritaðir í gær eru mikið fagnaðarefni þar sem samið er um um­tals­verðar launa­hækk­an­ir, en á þeim nót­um sem eru skyn­sam­leg­ar og koll­varpa ekki öllu því sem hef­ur áunn­ist á und­an­förn­um árum. �?etta seg­ir Sig­ur­geir Brynj­ar Krist­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðvar­inn­ar í Vest­manna­eyj­um í sam­tali við mbl.is, en hann geng­ur alla jafna und­ir nafn­inu Binni í viðtali við mbl.is.
Mik­il ábyrgð á ríki og sveit­ar­fé­lög­um
Aðspurður um kaup­mátt­ar­skil­yrðin sem er að finna í samn­ing­un­um seg­ir Binni að það sé fín lína sem þurfi að fylgja. Seg­ir hann að fyr­ir fyr­ir­tæki sem selji vöru og þjón­ustu inn­an­lands tákni þetta vænt­an­lega ein­hverja hækk­un vegna auk­ins launa­kostnaðar. Fyr­ir­tæki í út­flutn­ingi, eins og sjáv­ar­út­veg­ur­inn, geti aft­ur á móti ekki sótt verðhækk­an­ir til inn­lends markaðar og drífi því ekki áfram verðbólgu. Hækk­an­irn­ar komi því vænt­an­lega niður á af­komu fé­lag­anna.
Binni seg­ir að nú sé mik­il ábyrgð hjá ríki og sveit­ar­fé­lög­um. Vænt­an­lega muni þau semja um hækk­un við starfs­menn sína, en til að halda stöðug­leika og verðbólgu niðri geti þau þurft að halda aft­ur af hækk­un­um gjalda. Seg­ir hann að því hljóti að koma til fækk­un­ar starfs­fólks hjá þeim.
Kall­ar á aukna fram­leiðni og hag­kvæmni
�?egar Binni er spurður hvort að sjáv­ar­út­veg­ur­inn og vinnsl­an sé ekki vel í stakk búin fyr­ir hækk­an­ir sem þess­ar eft­ir góð ár und­an­farið seg­ir hann að það sé mis­skiln­ing­ur að sjáv­ar­út­veg­ur­inn hafi haft mikið upp úr geng­is­falli krón­unn­ar. Bend­ir hann á að mest all­ur rekst­ar­kostnaður fé­lag­anna sé er­lend­ur; olía, skip, tæki og búnaður. �?á séu laun sjón­manna tengd fiski- og afurðaverði.
�??�?að er þannig að fisk­vinnsla eins og við þekkj­um hana var fyr­ir hrun rek­in með tapi,�?? seg­ir Binni. Með falli krón­unn­ar hafi hlut­falls­leg­ur kostnaður lækkað og staðan batnað. Seg­ir hann að með hækk­andi kostnaði þurfi því að finna leið til að auka fram­leiðni og hag­kvæmni, eigi fisk­vinnsl­an áfram að vera arðsöm.
�?ll í sama báti
Binni seg­ir málið í raun ekki flókið. Und­ir­staða þjóðarbús­ins séu fyr­ir­tæki sem skapi verðmæti og þangað þurfi að sækja kaup­mátt­ar­aukn­ing­una sem nú sé hluti af kjara­samn­ingn­um. �?að þurfi því að búa til meiri verðmæti eða lækka kostnað. Arðinum þurfi svo að skipta milli eig­enda, starfs­manna í formi launa og rík­is og sveit­ar­fé­laga með skött­um, en ef laun­in séu of há þannig að fyr­ir­tæk­in geti ekki rekið sig með viðunn­andi arðsemi, þá þýði það at­vinnu­leysi.
Hann seg­ir þó niður­stöðu kjara­samn­ing­anna núna vera hóf­sama þar sem horft hafi verið fram á við án þess að ætla að koll­varpa því sem hafi áunn­ist á síðustu árum. �??Við erum öll í sama báti sem heit­ir ís­lensk þjóð,�?? seg­ir Binni.
mbl.is

Nýjustu fréttir

Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.