�?llu inn­an­lands­flugi af­lýst
Búið er að af­lýsa öllu flugi inn­an­lands í dag vegna veðurs. Í veður­spá Veg­ar­gerðar­inn­ar er greint frá því að öfl­ug hita­skil gangi yfir landið í dag með staðbundnu roki eða jafn­vel ofsa­veðri á Vest­ur- og Norðvest­ur­landi fram yfir há­degið en á Norður­landi frá Húna­flóa aust­ur yfir Eyja­fjörð um miðjan dag.
�?á verði foráttu­hvasst á fjall­veg­um vest­an­lands, s.s. Bröttu­brekku, Holta­vörðuheiði, Laxár­dals­heiði, Stein­gríms­fjarðar­heiði og á sunn­an­verðum Vest­fjörðum. Hefðbund­inn storm­ur, 18-23 m/�??s, verður á Hell­is­heiði, Lyng­dals­heiði og Mos­fells­heiði.
Skil­un­um fylg­ja tals­verð rign­ing og hlý­indi og má bú­ast við vexti í ám og lækj­um, og einnig mik­illi snjó­bráð. Á vef Veður­stof­unn­ar er varað við hættu á vatns­aga og krapa- og aur­flóðum úr gilj­um og rás­um í fjall­lendi. Einnig megi bú­ast við tals­verðum vatna­vöxt­um í ám sunn­an og vest­an til á land­inu.
Í kvöld snýst í suðvestanátt og kóln­ar hratt með élj­um eða snjó­komu og um miðnætti má bú­ast við hríð á fjall­veg­um vest­an ­til á land­inu frá Hell­is­heiði norður að Vatns­skarði og �?xna­dals­heiði.

Mbl.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.