Ömurleg aðkoma í kirkjugarðinum

Það var heldur betur ömurlega aðkoma sem mætti gestum í kirkjugarðinum í Vestmannaeyjum í dag. Einn eða fleiri aðilar hafa gengið um garðinn og valdið skemmdum á fjölda leiða. „Þetta er ömurlegt og tók mikið á mig að koma að þessu svona“, sagði aðstandandi við Eyjafréttir. Brotnar hafa verið lugtir á fjölda leiða en einnig átt við krossa og aðrar skreytingar.

„Sem betur fer er þetta ekki algengt, ég er sjálfur uppi í garði að skoða þetta núna. Það eru komin sjö að átta ár síðan var verið að ráðast svona á leiði hjá okkur. Þeir peyjar fundust fljótlega. Garðurinn er ekkert vaktaður og því erfitt að segja nákvæmlega hvenær þetta gerðist. Ég er á leiðinni að tala við lögregluna og vill benda þeim sem einhvers hafa orðið varir í kringum garðinn að hafa samband við þau,“ sagði Halldór Hallgrímsson umsjónarmaður kirkjugarðsins.

Aðstandandi sem Eyjafréttir ræddi við hafði þetta að segja að lokum.
„Ég vill benda foreldrum að ræða við börn og unglinga um svona hegðun, þetta er ekki mikið fjárhagslegt tjón en getur verið erfitt að koma að þessu svona.“

Nýjustu fréttir

Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu
Eyjaliðin í eldlínunni í dag
Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.