Ég undirrituð, íbúi í Vestmannaeyjum, fer fram á það að bæjarstjórn Vestmannaeyja krefjist þess að við fáum ríkisstyrk aftur á flugleiðina VEY-REY. Við höfum verið allt of þolinmóð gagnvart ríkisvaldinu vegna samgangna við Eyjarnar, frá áramótum hefur ekki verið hægt að sigla í Landeyjahöfn og það er nánast öruggt að svo verður líka næsta vetur, þar sem að við verðum með sama skipið, gjaldið hefur verið hækkað og þjónustan skert í skipinu.