Eyjamenn unnu sinn fyrsta sigur í deild og bikar í kvöld þegar liðið lagði 1. deildarlið Hauka að velli á Hásteinsvelli 3:0. �?etta var um leið fyrsti sigur sumarsins á Hásteinsvelli en kvennaliðið hafði einnig tapað einum leik á vellinum í sumar. Leikurinn var þokkalegur af hálfu ÍBV. Varnarmaðurinn sterki Brynjar Gauti Guðjónsson kom ÍBV yfir strax á 14. mínútu og Víðir �?orvarðarson bætti svo við öðrum marki ÍBV skömmu fyrir leikhlé. Markið var af dýrari gerðinni. Matt Garner tók langt innkast frá vinstri, Brynjar Gauti fleytti boltanum áfram með höfðinu og Víðir skoraði með bakfallsspyrnu. Skemmtileg tilþrif hjá Víði, sem átti eftir að láta meira að sér kveða. Eyjamenn höfðu öll völd á vellinum og sköpuðu sér nokkur færi. Jonathan Glenn sýndi af hverju hann var fenginn til ÍBV með nokkrum liprum sprettum í seinni hálfleik en honum vantaði þó að klára síðustu sendinguna til að búa til færin. Hann fiskaði þó vítaspyrnu á 76. mínútu þegar varnarmaður Hauka virtist toga hann niður. Víðir skoraði svo úr vítaspyrnunni, sitt annað mark í leiknum og þriðja í tveimur leikjum. Vonandi það sem koma skal. Undir lokin ógnuðu Haukar marki ÍBV, skutu m.a. í innanverða stöngina og voru óheppnir að minnka ekki muninn. Sigur ÍBV var þó aldrei í hættu.
Eyjamenn eru komnir áfram í 16-liða úrslit en dregið verður á föstudaginn í höfuðstöðvum KSÍ.