Eyjastúlkur tóku á móti Þrótti í dag. Leikurinn var fjörugur af hálfu ÍBV og mikið um fín færi. ÍBV fór með sigur af hólmi í dag 4-0, sigurinn hefði getað orðið stærri en sláin bjargaði Þrótturum þrisvar í dag. Heimir Hallgrímsson stýrði liðinu í fjarveru Jóns Óla sem var í banni eftir að hafa fengið rautt spjald í síðasta leik liðsins gegn Val.