Óskar Elías Óskarsson, íbúi í Vestmannaeyjum var ekki ánægður þegar hann kom að vitanum Hringskersgarðinum á Skanssvæðinu sunnudaginn 6. nóvember síðastliðinn. Óskar segir að svo virðist sem að bjarghringur hafi verið rifinn af vitanum og hent á jörðina stuttu frá. Bjarghringar sem þessi, eru mikilvæg öryggistæki sem full þörf er á víðast hvar ef neyðin ber að dyrum. Hins vegar virðast einhverjir óvitar ekki gera sér grein fyrir mikilvægi þessa öryggistækis því búið varð að rífa bjarghringinn niður af vitanum og festingarnar með. Þarna voru engin börn að leik því talsverða aflmuni þurfti til að rífa festingarnar niður.