Íslenskir framleiðendur á þurrkuðum fiskafurðum eru stærstu styrktaraðilar verkefnisins MISSION FOR VISION í Calabar í Nígeríu. Á dögunum var því fagnað að 22 þúsund augnaðgerðir hafa verið framkvæmdar í verkefninu en það hófst árið 2003. Augnaðgerðaverkefnið hefur frá upphafi miðað að því að gefa blindu og sjónskertu, fátæku fólki í Nígeríu sýn á ný en fólkið hefur ekki efni á að greiða fyrir slíkar aðgerðir á sjúkrahúsi. Framlag íslensku framleiðendanna dugir fyrir 2000 augnaðgerðum árlega.