Öll umferð annarra skipa og báta en Herjólfs um Landeyjahöfn er bönnuð. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Siglingastofnun sem send var út nú síðdegis en ástæðan er sú að bannið stendur á meðan reynsla er fengin á siglingar ferjunnar um höfnina og vegna mikils álags fram yfir þjóðhátíð. Einnig er nauðsynlegt að takmarka siglingar út frá slysahættu, þar sem að svæðið er ófrágengið og framkvæmdir enn í gangi, segir í fréttatilkynningunni