Að venju er þétt dagskrá í Landakirkju yfir páskana og hefst dagskráin í dag, skírdag.
Skírdagur, 18.apríl – Kl. 20.00. Messa í Landakirkju. Sr. Viðar Stefánsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Landakirkju syngur undir stjórn Kitty Kovács. Í lok messu fer fram afskríðing altarisins.
Föstudagurinn langi, 19.apríl – Kl. 11.00. Guðsþjónusta þar sem píslarsaga Jesú Krists verður lesin. Lesarar eru: Gabríel Ari Davíðsson, María Fönn Frostadóttir, Helga Jóhanna Harðardóttir, Unnar Hólm Ólafsson, Guðný Sigurmundsdóttir og Tryggvi Hjaltason. Krossberar eru Elínborg og Finnbogi. Sr. Guðmundur Örn þjónar fyrir altari og kór Landakirkju syngur undir stjórn Kitty Kovács.
Páskadagur, 21.apríl – Kl. 8.00. Hátíðarguðsþjónusta. Kór Landakirkju syngur undir stjórn Kitty Kovács og sr. Guðmundur Örn prédikar og þjónar fyrir altari. Að guðsþjónustu lokinni býður sóknarnefnd Ofanleitissóknar til morgunverðar í safnaðarheimilinu.
Kl. 10.30. Hátíðarguðsþjónusta á Hraunbúðum. Sr. Viðar Stefánsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Landakirkju syngur undir stjórn Kitty Kovács.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.