
Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum var haldinn í síðustu viku. Á fundinum var Grímur Gíslason kjörinn nýr formaður í stað Jarls Sigurgeirssonar, sem verið hefur formaður sl. 8 ár en Jarl gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu sem formaður.
Í samtali við Eyjafréttir sagði Grímur að nýja embættið legðist vel í sig og hann væri spenntur fyrir verkefnunum framundan, enda þekkti hann vel til þessara starfa og kæmi til þeirra með talsverða reynslu. Hann sagði að undirbúningur prófkjörs, til að stilla upp á lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor, væri kominn á fullan skrið og þegar því verkefni lyki og listinn yrði klár færi kosningaundirbúningur á fulla ferð, þannig að það væru næg og krefjandi verkefni framundan.
Grímur sagðist myndi vilja beita sér fyrir því að fleiri gætu fundið sér samleið með Sjálfstæðisflokknum í Eyjum svo hann yrði þar aftur leiðandi afl og hann teldi gott lag til þess núna. „Sjálfstæðisflokkurinn efndi til prófkjörs fyrir 4 árum til að velja á lista og aftur nú verður stillt upp með vali í prófkjöri. Ekkert annað stjórnmálaafl hér í Eyjum gefur kjósendum á þennan hátt kost á því að koma að því að stilla frambjóðendum á lista fyrir kosningarnar. Það eru ekki örfáir einstaklingar eða flokksforysta sem sér um þetta hjá okkur heldur kjósendur okkar, allir þeir sem vilja ganga til liðs við okkur geta tekið þátt. Við treystum kjósendum okkar til að sjá um þetta og ég hef trú á því að það muni laða fólk til fylgis við flokkinn,“ sagði Grímur.
Hann benti einnig á að sá klofningur sem varð í flokknum í aðdraganda kosninga 2018 hafi komið til vegna ágreinings um að ekki var efnt til prófkjörs til að stilla upp á lista þá og í kjölfar þess hafi margir dyggir stuðningsmenn flokksins sagt skilið við hann. „Nú þegar við efnum til prófkjörs aðrar bæjarstjórnarkosningarnar í röð, til að stilla upp á lista, hljóta að hafa skapast skilyrði fyrir þá sem fóru frá okkur vegna þessa að snúa til baka á ný.
Flokksbundnir Sjálfstæðismenn og þeir sem vilja ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og skrá sig í hann hafa fullan rétt til þátttöku í prófkjöri. Ég trúi því þess vegna að það sé gott lag núna fyrir þá sem fóru frá okkur að snúa til baka á ný og taka þátt í því með okkur að stilla upp öflugum lista Sjálfstæðisflokksins sem muni skila sér með auknu fylgi í kosningunum í vor. Það er vonandi að fólk grípi þetta tækifæri og komi heim á ný því, það skiptir máli að við náum að stilla saman strengi og gera Sjálfstæðisflokkinn hér aftur að því sterka afli sem hann var. Það mun örugglega skila góðum árangri fyrir bæjarfélagið á komandi árum,“ sagði Grímur.