Reglulega fara fram björgunaræfingar um borð í Herjólfi. Í gær var slík björgunaræfing um borð og voru 67 krakkar með í þeirri ferð. Farið var yfir öll öryggisatriði skipsins og hvernig bregðast eigi við ef eitthvað bjátar á. Enginn getur orðið áhafnarmeðlimur Herjólfs nema sá hinn sami hafi farið í björgunarskóla sjómanna. Myndin sem hér fylgir af áhöfninni á Herjólfi var tekin að nýlokinni björgunaræfingunni í gær.