Ríkisstjórn leggur til frestun verkfalls undirmanna á Herjólfi
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að leggja fyrir Alþingi lagafrumvarp um að fresta til 15. september verkfallsaðgerðum sem Sjómannasambands Íslands hóf á Herjólfi 5. mars. �?etta kemur fram í fréttatilkynningu frá innanríkisráðuneytinu sem var að berast ritstjórn Eyjafrétta. �??Með verkfallsaðgerðum er átt við vinnustöðvanir, verkbönn, verkföll og aðrar aðgerðir sem ætlað er að knýja fram aðra skipan kjaramála en lög þessi ákveða. Frumvarpið verður nú sent þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna til afgreiðslu og ráðgert er að leggja það fram á Alþingi í dag og óska þess að unnt verði að afgreiða það samdægurs.�??
Í fréttatilkynningunni kemur fram að í frumvarpinu sé verkfallsaðgerðum frestað og aðilum falið að nýta þann tíma til að ná samkomulagi á farsælan hátt en ekki verður farin sú leið að senda deiluna í gerðardóm. �??�?að er sameiginlegt fyrri inngripum Alþingis í kjaradeilur að með þeim hefur þurft að forða efnahagslegu tjóni eða að lögmæltum verkefnum hins opinbera verið stefnt í hættu.�??
�?ar kemur einnig fram að stjórnvöld standi frammi fyrir þeim erfiða kosti að grípa inn í kjaramál deiluaðila og að sú ákvörðun sé ekki léttvæg. �??�?á er það mat deiluaðila að ekki séu forsendur fyrir samningum eins og málin standa nú og lausn er ekki í sjónmáli. �?að verður því ekki undan vikist að Alþingi bregðist við. Sérstaða Vestmannaeyja í samgöngumálum er augljós og ótvíræð en Herjólfur tengir saman almenningssamgöngukerfi lands og Eyja. Vöruflutningar fara að mestu sjóleiðina milli lands og Eyja og hefur verkfallið því mjög neikvæð áhrif á atvinnulíf í Eyjum að ógleymdum áhrifum á íbúa sem reiða sig á Herjólf til að sækja nauðsynlega þjónustu til lands.�??

Nýjustu fréttir

Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.