Eyjakonan Rósa Guðmundsdóttir hefur undanfarin ár búið í bandarísku stórborginni New York þar sem hún hefur unnið að tónlist sinni. Rósa & Tthe Ultratight heitir bandið hennar en Rósa á í viðræðum við plötuútgáfuna Jive, sem er dótturfyrirtæki Sony og gefur meðal annars út Britney Spears og Justin Timberlake. „Næst á dagskrá er að koma fram fyrir lykilfólk innan Sony, segir Rósa í viðtali á Vísi.is.
“