Eyjamenn báru sigur úr býtum í Suðurlandsskjálfanum þegar suðurlandsliðin ÍBV og Selfoss áttust við í Eyjum í dag. Eyjamenn voru yfir allan tímann og verður sigur þeirra að teljast nokkuð sanngjarn. Þó var smá spenna undir lok leiksins þegar Selfyssingum tókst að minnka muninn úr 30:25 í 30:28 en Eyjamenn skoruðu síðustu tvö mörk leiksins og fögnuðu vel og innilega í leikslok. Þetta er sjötti sigur ÍBV í röð en síðast töpuðu Eyjamenn einmitt gegn Selfyssingum, á Selfossi í miklum baráttuleik. Áhorfendur létu vel í sér heyra og Stalla hú mætti á svæðið þannig að stemmningin var mjög góð í Eyjum í dag.