Sérfræðingar vs. heilbrigð skynsemi
Georg Eiður Arnarson skrifar
22. ágúst, 2025
gea_opf
Greinarhöfundur á miðunum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur

Aðeins nokkrir dagar í að nýtt fiskveiðiár hefjist, en ég hef að undanförnu verið að velta fyrir mér þessu með blessaða sérfræðingana okkar.

Ef við byrjum á veðurfræðingunum, þá er það nú einu sinni þannig að flestir þekkja það að veðurspá viku fram í tímann stenst yfirleitt ekki. Þess vegna þótti mér svolítið skondið í fyrra sumar að horfa upp á Sigga storm sjálfan mæta í beina útsendingu og biðjast afsökunar á því að hafa spáð því að sumarið yrði gott, sem það varð alls ekki. Samt var hann aftur kallaður til í vor, en í ár spáði hann því að sumarið yrði svolítið rysjótt, sem að gekk heldur ekki eftir, enda frábært sumar að baki. amk í flestum landshlutum og mér varð hugsað til þess, að 1. maí í vor fór ég bakvið Háhá og fékk 4 máfsegg í 2 hreiðrum, sem er óvenju snemmt en spáði því þá um leið að þetta yrði frábært sumar og klárlega verð ég að fara aftur 1. maí á næsta ári, það verður spennandi að sjá hvað ég fæ þá og hvaða merkingu það hefur, en ég hef lengi verið á þeirri skoðun að náttúran og lífríkið segi okkur miklu meira um hvað verður og miklu frekar heldur en einhverjir sérfræðingar.

Tökum annan hóp sérfræðinga, eldfjallasérfræðinga, eða náttúruvárliðar. Nú hafa allir þessir eldfjallasérfræðingar fylgst með mjög öflugum og góðum tækjum með öllum hreyfingum á gosstöðvunum við Grindavík. Samt hefur viðbragðstíminn við það að það sé að hefjast gos aldrei náð meira en innan við klukkutíma og þegar þessir sömu sérfræðingar eru spurðir út í hugsanleg goslok, þá hefur það einfaldlega aldrei staðist, enda er stór hluti af þessari vinnu hjá þessum sérfræðingum fyrst og fremst ágiskanir og að reyna að lesa úr gögnum.

Varðandi veðurfræðingana, þá er þetta eitthvað sem skiptir kannski ekki miklu máli þó að veðurspáin standist kannski ekki. Að mörgu leyti skiptur það svipuðu máli varðandi spár eldfjallasérfræðingana nema að því leytinu til að þetta er óþægilegt ástand fyrir íbúa Grindavíkur. Að sjálfsögðu hefur maður þó alveg skilning á því að menn vilja hafa varan á sér þegar kemur að eldgosum.

Allt öðru máli skiptir þegar kemur að sérfræðingum Hafró, en nú er liðið rúmt ár síðan að helstu sérfræðingar Hafró spáðu því, að þorskkvótinn yrði minnkaður fyrir komandi fiskveiðiár, eins og raun ber vitni, en á sama tíma hefur sennilega aldrei verið jafn mikið af þorski á Íslandsmiður og í ár og undanfarin ár.

Sjálfur fór ég á sjó í dag (í gær) og prófaði að renna færi á nokkrum stöðum og allstaðar varð ég var við þorsk. Ég hef ákveðinn skilning á því að núverandi atvinnumálaráðherra velji að fara að tillögum Hafró, enda er það einfaldasta og auðveldasta aðferðin til þess að firra sig ábyrgð.

En hvað kostar þessi niðurstaða?

Ef við miðum við loforðin frá því 1984 þá kostar þetta okkur 100 milljarða á hverju ári og ef við höfum það í huga að síðustu 30 árin hefur nánast algjörlega verið farið að tillögum Hafró og það þrátt fyrir að það hafi engu skilað. Það er augljóst að það er eitthvað mikið að aðferðarfræði Hafró við að mæla stærð fiskistofnanna og algjörlega augljóst að það verður að fara að grípa inn í og breyta þessu þannig að við getum farið að veiða í samræmi við getu fiskistofnanna, en ekki úreltar aðferðir Hafró við að mæla stærð fiskistofnanna.

Við getum hlegið að því þegar veðurspáin stenst ekki, við getum líka horft á eldfjallasérfræðingana úr fjarlægð og haft svona ákveðið gaman að því þegar fréttamenn eru að reyna að fá þá til að spá fyrir um upphaf eða endi eldgosa, en það er orðið algjörlega nauðsýnlegt að við förum að nýta sjávarauðlindina okkar af heilbrigðri skynsemi.

Óska öllum sjómönnum og útgerðarmönnum gleðilegs nýs fiskveiðiárs.

 

Georg Eiður Arnarson

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
PXL 20251104 095848596
9. nóvember 2025
17:00
Bókakynning í Eldheimum - Óli Gränz
Skemmtun
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.