Sexan 2024 er hafin
sexan

Sexan er fræðsluverkefni sem ætlað er að fræða ungt fólk um birtingarmyndir stafræns ofbeldis. Viðfangsefni stuttmyndanna er tæling, nektarmynd, samþykki eða slagsmál ungmenna. Auk þess er opinn flokkur fyrir önnur mikilvæg málefni sem 12-13 ára krökkum þykja mikilvægt að lyfta upp.

Stuttmyndirnar mega mest vera 3 mínútur að lengd og hver skóli má mest senda þrjár stuttmyndir. Nemendur hafa frjálsar hendur með handritagerð, kvikmyndatöku og eftirvinnslu. Nemendur af erlendum uppruna, hinsegin og fatlaðir nemendur eru sérstaklega hvattir til að taka þátt.

Opið er fyrir innsendingar milli 8-28.janúar á vef 112.is/sexan. Dómnefnd skipuð fulltrúum ungmennaráðs, RÚV, MMS og fulltrúa kvikmyndagerðar mun svo velja þrjár bestu myndirnar sem verða kynntar á vef UngRÚV. Formaður dómnefndar Sexunnar 2024 er kvikmyndaleikstjórinn Baldvin Z.

Kjarni verkefnisins er að ungt fólk fræði ungt fólk. Þau eru best til þess fallin að varpa ljósi á þeirra veruleika og hvar helstu áskoranirnar leynast í daglegu lífi ungmenna. Verðlaunamyndirnar verða svo sendar í alla grunnskóla landsins sem fræðsluefni um stafrænt ofbeldi og getur þannig nýst þeim skólum sem ekki taka þátt sem og komandi kynslóðum.

Sexan er nú haldin í annað sinn en í fyrra sendu 27 skólar yfir 50 stuttmyndir. Sigurvegari 2023 var Selásskóli með stuttmyndina Friend Request, Heiðarskóli í Reykjanesbæ var í 2.sæti en Suðurhlíðarskóli var í 3.sæti. Vinningshöfum var síðar boðið að koma fram á NFBO, norrænni ráðstefnu um Ofbeldi gegn börnum sem var haldin á Hilton Nordica í maí 2023. Vinningsmyndirnar þrjár má finna bæði á Youtube rás Neyðarlínunnar og á vef Neyðarlínunnar: 112.is/sexan en þar má einnig finna frekari fræðslu um viðfangsefnin, innsendingargáttina og góð ráð fyrir stuttmyndagerð.

Sexan er forvarnar- og fræðsluverkefni breiðrar fylkingar samstarfsaðila sem öll láta sig lýðheilsu ungmenna varða: Neyðarlínan, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga, Jafnréttisstofa, Barna- og fjölskyldustofa, Fjölmiðlanefnd, Samskiptafulltrúi íþrótta- og æskulýðsstarfs, Ríkislögreglustjóri, Menntamálastofnun og RÚV.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.