Klukkan 14.00 á morgun, fimmtudaginn 12. desember eru 60 ár frá því fyrsti Herjólfur kom nýr til Vestmannaeyja. Það var mikið framfaraspor í samgögnum Eyjafólks því með tilkomu hans hófust reglulegar siglingar til Vestmannaeyja. Reyndar frá Reykjavík en einu sinni í viku var skutlast í Þorlákshöfn.

Þessa verður minnst í Einarsstofu í Safnahúsi kl. 17.00 á morgun, fimmtudag þegar Sigurgeir Jónasson, frá Skuld og Viktor P. Jónsson verða með ljósmyndasýningu sem þeir hafa tekið saman. Sigurgeir tók myndir þegar svarti Herjólfur eins og hann var oft nefndur kom til hafnar í Eyjum. Einnig frá komu Herjólfs annars og þriðja og fleiri skipum sem þjónuðu Eyjamönnum hér áður. Saman tóku þeir myndir þegar sá nýjasti kom síðasta sumar og verða þær einnig með í sýningunni.
Verður gaman að sjá þróun samgangna á sjó við Vestmannaeyjar og hluta þeirra sem komu að því stóra verkefni.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.