Eyjamenn sóttu ekki gull í greipar KR-inga, þegar þeir heimsóttu þá í Frostaskjólið í kvöld. Þeir höfðu þó alla möguleika til þess. Þess í stað skoruðu KR-ingar sigurmarkið á 89. mínútu leiksins. Tíðindamaður eyjafretta sem staddur var á leiknum, segir að Vestmannaeyingarnir hafi verið klaufar að taka ekki öll 3 stigin með sér heim. Til þess höfðu þeir marktækifærin en ekki heppnina. Fleira komi þó til.