Sjávarútvegsfyrirtæki greiddu rúma 9 milljarða króna í veiðigjöld fyrir fiskveiðiárið 2013-2014. �?etta kom fram hjá Sigurði Inga Jóhannssyni við fyrirspurn á Alþingi í fyrradag. Hæstu veiðigjöldin koma frá Reykjavík eða rúmlega 2.147 milljarðar króna. Næstmestu veiðigjöldin koma frá Vestmannaeyjum, rúmlega 1.73 milljarðar króna eða tæplega 20% af heildargjöldunum. Almenna veiðigjaldið í Eyjum er 592 milljónir og sérstaka veiðigjaldið 1.22 milljaðar króna. Lækkun sérstaka veiðigjaldsins í Eyjum var 860 milljónr, en lækkunin er tilkomin vegna vaxtakostnaðar og kaupa á veiðiheimildum. �?essir tveir staðir, Reykjavík og Vestmannaeyja skera sig úr með langhæstu veiðigjöldin. Ef veiðigjöldum er deilt niður á íbúa Reykjavíkur, greiðir hver Reykvíkingur að meðaltali 1.787 krónur. Vestmannaeyingar greiða að meðaltali 401.545 krónur í veiðigjöld.