Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrum borgarstjóri í Reykjavík býður sig fram í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins á Landsfundi sem hefst í Laugardalshöll á morgun, fimmtudag. Hanna Birna heimsótti Eyjarnar á föstudag í síðustu viku þar sem hún kynnti sig og sín málefni í komandi formannskjöri. Eyjafréttir.is sendu nokkrar spurningar á Hönnu Birnu en svörin má sjá hér að neðan.