Sjöttu Jólaperlur í ár
Jólaperlur, tónleikar til styrktar �?skulýðsfélagi Landakirkju, verða haldnir í sjötta sinn í ár. Tónleikarnir, sem fyrst voru haldnir árið 2003 og siðan samfleytt frá árinu 2010, hafa vakið mikla lukku meðal gesta og fjöldi listamana stigið þar á stokk gegnum árin.
Nú í fyrsta sinn verða Jólaperlur einnig haldnar í Reykjavík, nánar tiltekið í Seljakirkju, þann 6. desember næstkomandi. Farið verður í gegnum öll bestu lögin sem flutt hafa verið gegnum árin auk þess að nýjum og flottum lögum verður skotið inn á milli. Jólaperlurnar verða svo á sínum vanarlega stað í Safanaðarheimili Landakirkju þann 17. desember næstkomandi.
Hópurinn sem kemur fram í ár verður að stæsrtum hluta sá sami á báðum tónleikunum en af hinum og þessum ástæðum er ekki öllum unnt að vera á báðum stöðum. Íris Guðmundsdóttir, Birkir Högnason, Jórunn Lilja Jónasdóttir og Ragnhildur Magnúsdóttir verða með í Seljakirkju en komast ekki til Eyja þetta árið. Svanhildur Eiríksdóttir, sem leikur á flautu í Seljakirkju mun einnig syngja í Eyjum og stúlknatrío undir stjórn Kitty Kovács stígur þar á stokk.
Una �?orvaldsdóttir, Sólveig Unnur Ragnarsdóttir, Vilborg Sigurðardóttir, Sísí Ásþórs, Snædís Högnadóttir og Helga Sóley Aradóttir verða allar á báðum stöðum auk Ylfu Lindar Gylfadóttur sem heimsótt hefur Jólaperlur í Eyjum allt frá árinu 2010. �?á munu sömu frábæri tónlistarmenirnir sjá um tónlistina á báðum stöðum undir stjórn Bigga Nielsen.
Ísfélag Vestmanaeyja og Vinnslustöð Vestmannaeyja styðja við bakið Jólaperlum í ár eins og öll hin árin, auk Eimskip, Olís, Senia og CocaCola.
Miðasala á Jólaperlur í Seljakirkju er í fullum gangi á miði.is en miðasalan í Eyjum hefst upp úr mánaðarmótum.
Kveðja Jólaperluhópurinn

Nýjustu fréttir

Opið hús og kertalýsing – myndir
Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR
Nemendum boðið á sundnámskeið
Dýpkun strandar á veðri og ölduhæð
Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.