Hljómsveitin Sjöund verður í Hallarlundi um helgina en þá verður skemmtistaðurinn opnaður formlega. Sjöund spilaði síðast í Eyjum fyrir um tuttugu árum og ætlar að standa fyrir rólegri pöbbastemmningu á föstudagskvöldinu og svo verður alvöru ball á laugardagskvöldinu.