Góðan dag. Það er enn bálhvasst og eftir samtal við lögregluna höfum við ákveðið að skólahald hefjist ekki fyrr en kl. 10 í dag. En þá á veðrið að hafa gengið niður. Skólinn er að sjálfsögðu opinn frá 7:40 en eðlilegt skólahald hefst ekki fyrr en kl. 10.
Minnum á reglur skólans um veður og ófærði.
Stefna skólans er að leggja ekki niður skólahald nema brýna nauðsyn beri til.
Í óveðri eru stjórnendur skólans alltaf í sambandi við lögreglu og ástandið metið, þ.e. hvort
ástæða sé til að leggja skólahald niður, er það þá gert í samráði við lögreglu, ef staðan er metin
þannig að ekki sé óhætt að vera á ferli.
Telji forráðamenn nemenda veður eða veðurútlit varhugavert þótt engin tilkynning hafi borist
frá skóla varðandi skólahald, er það alltaf foreldra að meta hvort þeir telji rétt að senda börn
sín af stað í skólann og ber þá að tilkynna forföll til ritara/umsjónarkenna strax að morgni.
Alltaf er starfsfólk til staðar í skólanum til að taka á móti þeim sem komast. Í hvert skipti verður
metið hvort nemendur geti farið fótgangandi á milli skólahúss og íþróttahúss. Ef óveður skellur
á meðan nemendur eru í skólanum þá er nemendum skólans ekki hleypt heim nema foreldrar
sæki þá eða tryggi börnum sínum örugga heimferð á annan hátt. Nemendum er tryggð aðstaða
í skólanum svo lengi sem þarf
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.