Forsvarsmenn Herjólfs sendu nú í morgun frá sér viðvörun vegna ferða skipsins mánudag og þriðjudag. Ölduspá fyrir þessa tvo daga er slæm og því gæti farið svo að fella verði niður einhverjar, og hugsanlega allar ferðir skipsins til Þorlákshafnar þessa daga. Mjög slæm færð er á þjóðvegum hringinn í kringum landið, m.a. á Hellisheiði og í Þrengslum og varla ferðaveður eins og staðan er núna.