Bæta á aðgengi og fjölga bílastæðum við Kirkjugerði
Hraunbúðir og Kirkjugerði. Hér neðst á myndinni má sjá umrætt svæði við Kirkjugerði.

Fræðsluráð Vestmannaeyja tekur jákvætt í tillögur um breytingar á umferð við leikskólann Kirkjugerði. Meðal þess sem lagt er til er að opna fyrir einstefnuakstur frá bílastæði leikskólans og út á Hraunveg. Jafnframt eru uppi hugmyndir um að fjölga bílastæðum á svæðinu til að bæta aðgengi.

Ráðið telur mikilvægt að ráðast í slíkar úrbætur til að bæta bæði aðgengi og umferðaröryggi við leikskólann.

Skóladagatal 2026–2027 staðfest

Á sama fundi staðfesti fræðsluráð skóladagatal leik- og grunnskóla ásamt frístund fyrir skólaárið 2026–2027. Kennsludagar í grunnskóla verða 180 og hefst skólaárið 24. ágúst. Skólaslit fara fram 9. júní og vetrarleyfi verður dagana 19.–23. október.

Frístund verður opin alla virka daga frá klukkan 12:30 til 16:30 samkvæmt dagatalinu og hefst sumarfrístund 10. júní.

Nýjustu fréttir

Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.