Í kvöld mun Sönghópur Leikfélagsins halda sína fyrstu tónleika. Hópurinn var stofnaður í október í fyrra eftir að hafa tekið þátt í stórtónleikunum Ljós í Leikhúsið og hefur hann æft einu sinni í viku síðan. Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg og munu einsöngvarar úr hópnum og leikfélaginu stíga á stokk.
Stjórnandi er Sólveig Unnur Ragnarsdóttir en við flygilinn situr Páll Viðar Kristinnsson.