Í dag, miðvikudag mun karlalið ÍBV leika sinn árlega æfingaleik í Eyjum fyrir Íslandsmótið. Bjarni Jóhannsson, fyrrum þjálfari ÍBV kemur þá með lærisveina sína í Stjörnunni í heimsókn en leikurinn fer fram á Helgafellsvelli og hefst um fimmleytið. Þetta er síðasti æfingaleikur ÍBV-liðsins fyrir átökin í Íslandsmótinu enda er fyrsti leikur Íslandsmótsins næstkomandi mánudag þegar ÍBV tekur á móti Fram á Hásteinsvellinum.