Stærsti hluthafinn í VSV krefst rannsóknar á eignatilfærslum tengdum Brimi hf.

Seil ehf., stærsti hluthafi í Vinnslustöðinni hf. og hluthafi í Landsbankanum hf., leggur til við aðalfund Landsbankans hf. á morgun, fimmtudaginn 4. apríl, að rannsökuð verði aðkoma bankans og starfsmanna hans að tiltekinni tilfærslu eigna og eignarhluta félaga sem Guðmundur Kristjánsson átti að öllu leyti eða að hluta. Vísað er þar til Línuskipa ehf. (síðar XX26 ehf.), Brims hf. og Vinnslustöðvarinnar hf. á árunum 2007 til 2010.

Endurskoðunarfyrirtækið PwC tók saman skýrslu um málið að beiðni Seilar ehf. Þar koma fram vísbendingar um að þegar Línuskip voru komin í þrot hafi Landsbankinn, viðskiptabanki félagsins, hlutast til um að Guðmundur Kristjánsson héldi verðmætustu eignum Línuskipa, þ.e.a.s. útgerðarfélaginu Brimi og hlutafjáreign í Vinnslustöðinni. Grunsemdir eru um að þessar eignir hafi verið fluttar til tengdra félaga á lægra verði en gerst hefði í viðskiptum ótengdra aðila.

Seil ehf. telur að tjón Landsbankans vegna þessarar hegðunar nemi að minnsta kosti 5,8 milljörðum króna. Félagið rökstyður málflutning sinn og tillögu um tilnefningu rannsóknarmanna með því að vísa í skýrslu PwC.

Jóhann Pétursson hæstaréttarlögmaður fer með málið fyrir hönd Seilar hf. Hann segir það augljóslega þjóna hagsmunum Landsbankans að rannsaka frekar niðurstöður löggiltra endurskoðenda PwC um mögulega undirverðlagningu eigna. Bankinn sjálfur búi yfir gögnum og upplýsingum sem ekki sé mögulegt að nálgast opinberlega en geti varpað ljósi á það sem þarna gerðist.

*Tillaga Seilar ehf., lögð fram á aðalfundi Landsbankans hf. 24. apríl 2019

Nýjustu fréttir

Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin
Áframhaldandi hvassviðri út vikuna  
Áætlun um rýmingu Heimaeyjar eftir að Surtsey fór að gjósa
Loðnu að finna á stóru svæði
Íbúakosning samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.