Kvennalið ÍBV vann í dag laglegan sigur á HK í Íslandsmótinu í Eyjum en lokatölur urðu 29:26 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16:11 ÍBV í vil. Eyjastúlkur voru allan tímann með yfirhöndina en náðu mjög góðum leikkafla undir lok fyrri hálfleiks þar sem þær náðu sex marka forystu en HK náði að minnka muninn undir lok hálfleiksins. Gestirnir reyndu svo hvað þær gátu til að jafna metin en komust aldrei nær en minnstur varð munurinn þrjú mörk undir lok leiksins.