Sterkari sveitir eru allra hagur
Vilhjálmur Árnason, Björn Bjarki Þorsteinsson og Njáll Trausti Friðbertsson skrifa
Njáll Trausti Friðbertsson, Björn Bjarki Þorsteinsson og Vilhjálmur Árnason

Reglulega kemur upp umræða um jarðir, jarðaviðskipti og kynslóðaskipti í landbúnaði. Í ritinu Ræktum Ísland, skýrslu Björns Bjarnasonar og Hlédísar Sveinsdóttur, er efninu gerð verðug skil. Þá hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins ítrekað flutt frumvörp um ýmsar aðgerðir til að auðvelda ættliðaskipti á bújörðum.

Fullveldið er í húfi

Of lítil umræða hefur verið um skýrslu um jarðir, sem stýrihópur á vegum Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra skilaði 2021. Skýrslan tekur á mikilvægu úrlausnarefni þar sem mikið verk er enn óunnið til að lög, reglur og stjórnsýsla falli að nútímanum og breyttum aðstæðum og viðhorfum til lands og þeirra gæða sem í því felast.  Þegar skýrslan er rýnd vekur athygli að virðing fyrir eignarrétti bænda, og viðhorf til jarðaviðskipta eru vanþróuð hér á landi.  Í skýrslunni segir:

„Alþjóðleg reynsla hefur sýnt að rík ástæða er til að gjalda varhug við mikilli samþjöppun eignarhalds á landi. Land er enda undirstaða fullveldis ríkja og telst það til grundvallargæða hvers samfélags. Íslenskt land er sérstaklega verðmætt enda geymir það víðast hvar gnægð af þjóðfélagslega mikilvægum náttúruauðlindum undir og á yfirborði jarðar, þar á meðal jarðhita-, vatns og veiðiréttindum. Eru þá ótalin þau miklu samfélagslegu og menningarlegu verðmæti sem felast í náttúru landsins og náttúru- og menningarminjum ýmiss konar. Viðhlítandi aðgangur að landi er einnig forsenda uppbyggingar og nýliðunar í landbúnaði og nauðsynlegur þáttur í viðhaldi og þróun byggðar.“

Mótum nýja löggjöf

Af þessum texta í skýrslunni sést að full þörf er fyrir mun ítarlegra samtali og vinnu við mótun löggjafar um jarðir á Íslandi, fyrir því viljum við standa.

Ekki verður um það deilt  að samfélagsbreyting og aukin ásókn í bújarðir hafi ekki verið til að bæta hag bænda.  Ótal dæmi eru um að „nýir” jarðeigendur hafa auðgað og styrkt sveitir, þó hin hliðin þekkist líka.

Þá skal ekki gleymt að ljósleiðarvæðing dreifbýlis og átak í lagningu á 3ja fasa rafmagni, hefur styrkt búsetu og verðmætasköpun í sveitum.  Þessi verkefni hefur Sjálfstæðisflokkurinn leitt.

Kynslóðaskipti

Nýliðun í landbúnaði kemur okkur öllum við og íslenska þjóðin, í breyttri heimsmynd, verður að horfast í augu við að sjálft fullveldið er í húfi, hvernig íslenskum landbúnaði vegnar.  Grundvallaratriði er að afkoma bænda verði traust. Ungum bændum þurfa að standa til boða, eins og öðrum landsmönnum, almennar aðgerðir í húsnæðismálum. Má þar nefna stofnframlög og/eða hlutdeildarlán til kaupa á íbúðarhúsnæði.  Einnig  þarf með markvissum hætti  að beita skattkerfinu, svo eldri kynslóð bænda hafi hag af því að verða hluti af lausninni með því að viðurkenna að söluverð búa og jarða er séreignarsparnaður þeirra.  Áhuga vantar ekki hjá ungu fólki að hasla sér völl í landbúnaði.

Ný tækifæri

Í áðurnefndri skýrslu er einnig m.a. umfjöllun um breytingar og meðferð á heimildum til að fara um land bænda.  Má þar strax koma auga á löngu tímabæra breytingu á samningum við bændur um línulagnir, sem krefst að þess að farið sé um lönd bænda, þannig að leigutekjur renni til jarðanna/bænda.

Enginn vafi er á að eignarhald bænda sjálfra á bújörðum sínum, tryggir hag þeirra og þjóðfélagsins best.  Sjálfstæðisflokkurinn hefur, vill og mun standa áfram að framförum í íslenskum landbúnaði og sveitum.

 

Vilhjálmur Árnason
Björn Bjarki Þorsteinsson
Njáll Trausti Friðbertsson

Höfundar skipa 2. sæti á framboðslistum Sjálfstæðisflokksins í landsbyggðarkjördæmunum þremur.

Nýjustu fréttir

Ekkert áframhaldandi flug
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.