Í dag klukkan 14:00 leikur kvennalið ÍBV stærsta leik liðsins í áraraðir þegar liðið tekur á móti úrvalsdeildarliði Stjörnunnar í undanúrslitum bikarkeppninnar. ÍBV leikur sem kunnugt er í 1. deild Íslandsmótsins en leikurinn fer fram á Hásteinsvellinum. Í hinni viðureign undanúrslitanna mætast svo úrvalsdeildarliðin Valur og Þór/KA.