�??Við rennum blint í sjóinn. Vitum nánast ekkert um þetta lið sem mætum en látum það ekki á okkur fá,�?? sagði Arnar Pétursson, þjálfari karlaliðs ÍBV í handknattleik við
mbl.is en hann er mættur til Zhlobin í Hvíta-Rússlandi þar sem ÍBV mætir HC Gomel í Áskorendakeppni Evrópu í dag. Um er að ræða fyrri viðureign liðanna.
�??Venjulega þá býr maður sig undir leiki með því að fara yfir upptökur af leikjum andstæðinganna en í þessu tilfelli er því ekki til að dreifa. Við höfum reyndar bút úr leik HC Gomel og Meshkov Brest en þar var svo mikill munur á liðunum að það er ekkert að marka enda er Brest eitt besta lið Evrópu. Nú erum við í einhverju allt öðru sem getur líka verið spennandi,�?? sagði Arnar í gær.
Var hann nýstiginn upp í rútu fyrir utan flugvöllinn í Minsk en rútan átti að flytja hann og liðsmenn ÍBV nærri 300 km leið til Zhlobin. Bærinn er í suðausturhluta Hvíta-Rússlands, ekki langt frá landamærunum �?kraínu, ekki svo ýkja langt frá borginni Chernobyl hvar eitt mesta kjarnorkuslys sögunni varð fyrir rúmum 30 árum.