Stuðningsmenn ÍBV - þið eigið leikinn - Enn eru þrír titlar í boði
Bikarúrslitaleikir snúast um dagsformið og stemminguna. Allt getur gerst. Meistaraflokkur kvenna hefur orðið þrisvar bikarmeistari, 2001, 2002 og 2004. Meistaraflokkur karla hefur einu sinni orðið bikarmeistari 1991. Sá leikur og sú stemming sem þar varð til er öllum Eyjamönnum í fersku minni og þótt víðar væri leitað. Nýtt viðmið var sett af stuðningsmönnum
ÍBV sem dönsuðu sig í gegnum leikinn með sambatöktum svo eftir var tekið. �?vintýrið gerðist og ÍBV sigraði í leiknum. �?essi stemming hefur án efa skilað sér síðar þegar að
kvennalið ÍBV mætti í Höllina og stuðningsmenn voru klárir. �?eir kunnu þetta.
Nú þarf aftur að gerast ævintýri og það tvöfalt. Við vitum nú að þetta er hægt, það segir sagan okkur. En við vitum líka hvað til þarf. Stuðningsmenn þið eigið leikinn. En nú er
ekki bara 1 úrslitaleikur heldur eru þeir 4. Helgin er öll undir. Gerum Laugardalshöll að okkar heimavelli á fimmtudag, föstudag og laugardag og reyndar sunnudag líka með yngri
flokkum ÍBV. Höllin er hvítmáluð að utan, það er ekki tilviljun. Nú verður hún einnig hvít að innan. Við skulum Koma Fagnandi og sýna Hvar Hjartað Slær. Sjáumst öll saman um helgina.
ÍBV- Stuðningsmenn og stjórn.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.